Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur í samstarfi við Kaupfélag Skagfirðinga unnið að nýrri námsbraut í matvælaiðn. Brautin er 60 einingar og ljúka nemendur námi á 2. þrepi framhaldsskólastigs.

Námið skiptist í þrennt, þriðjungur þess er bóklegt og aðrar einingar eru starfsnám og vinnustaðanám. Bóklegu áfangarnir verða kenndir í kvöldskóla FNV og er stefnt að því að byrja fyrsta áfangann í október 2025.