Fyrirhugað er að vígja nýja skíðalyftu á skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók, laugardaginn 23. mars kl. 11:30. Nýja lyftan er kærkomin viðbót við þá aðstöðu sem í boði er á skíðasvæði Tindastóls og stækkar skíðasvæðið þar til muna, en lyftan er 1.045 metrar að lengd og liggur frá enda núverandi lyftu sem er í 440 metra hæð yfir sjávarmáli en nýja lyftan endar í 903 metra hæð yfir sjávarmáli. Með tilkomu nýju lyftunnar gefst skíðafólki tækifæri til þess að skíða á nýju og glæsilegu svæði með stórkostlegt útsýni fyrir augum sér og er það kærkomin viðbót við skíðasvæði Tindastóls,