Lokun eldri farsímakerfa um land allt er lokið og 4G og 5G farsímakerfi hafa alfarið tekið við. Ísland er þar með fyrsta land Evrópu til að ljúka þessari tæknibreytingu á landsvísu. Í kjölfar lokunarinnar hefur komið í ljós að sumir farsímar, einkum eldri gerðir og ákveðnir símar sem keyptir hafa verið erlendis, geta átt í erfiðleikum með að ná sambandi við neyðarnúmerið 112. Sjá leiðbeiningar á vef 112.

Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og íslensk farsímafyrirtæki vinna nú sameiginlega að því að greina orsök vandans og finna lausnir eins fljótt og kostur er.

Vandamálin geta meðal annars birst þannig að:

  • ekki tekst að tengjast 112,
  • símtöl ná ekki í gegn,
  • hljóðgæði eru slök eða truflanir verða í símtölum,
  • símtöl rofna óvænt.

Ef ekki tekst að tengjast 112 eða símtal rofnar vegna tæknilegra vandamála er hægt að hringja í númerið +354 5990112.

Athygli er vakin á því að símtöl í þetta númer eru meðhöndluð sem almenn símtöl. Þau njóta ekki sama forgangs og símtöl í 112 og senda ekki sjálfkrafa staðsetningarupplýsingar til neyðarþjónustu. Í neyðartilfellum skal þó alltaf hringja fyrst í 112. Varanúmerið er aðeins ætlað til notkunar þegar ekki næst samband við 112 eða samskipti eru ómöguleg vegna slæmra tenginga.

Neyðarlínan bendir á að einnig sé hægt að hafa samband við 112 í gegnum 112 appið eða vefspjall á vefnum 112.is. Þessar leiðir geta verið sérstaklega gagnlegar þegar staðsetningarupplýsingar eða tungumálaörðugleikar valda áskorunum. Með þeim er meðal annars hægt að senda myndir og staðsetningu auk þess sem þær auðvelda þýðingar milli tungumála ef þörf krefur. Einnig er hægt að senda SMS-skilaboð til 112, þó með takmarkaðri möguleikum en í appi eða vefspjalli.

Ekki prófa símann með því að hringja í 112. Slík prófunarsímtöl geta aukið álag á neyðarvaktir og tafið þjónustu við fólk sem er í raunverulegum neyðartilvikum. Notið prufunúmerið 1280.

Fjarskiptastofa og Neyðarlínan hvetja almenning til að aðstoða þá sem kunna að eiga erfitt með að laga sig að tæknibreytingunum. Til dæmis með því að:

  • deila upplýsingunum með fjölskyldu, vinum og nágrönnum,
  • aðstoða fólk við að hafa samband við 112
  • hjálpa við að uppfæra eða endurnýja eldri síma
  • leiðbeina um samskipti við farsímafyrirtæki eða söluaðila
  • upplýsa um varanúmerið +354 599 0112

 

Neyðarlínan bendir á að eftirfarandi hópar gætu þurft sérstaka aðstoð:

  • eldra fólk
  • börn
  • ferðamenn
  • fólk með skerta líkamlega eða andlega færni
  • erlendir ríkisborgarar og nýir innflytjendur