Leiðangursskipið National Geographic Explorer kom til Sauðárkróks 20. júní síðstliðinn. National Geographic Explorer er lítið en vel búið ísklassa-leiðangursskip í flota National Geographic. Skipið er hannað fyrir rannsóknar- og náttúruferðir á norðurslóðum og suðurskautssvæðum og er sérstaklega útbúið til að komast nær náttúru, dýralífi og afskekktum áfangastöðum.

Flestir gestir skipsins nýta viðkomuna til að fara í skipulagðar ferðir um Skagafjörð og kynnast því sem svæðið hefur upp á að bjóða. Þar má meðal annars nefna heimsókn í Glaumbæ, hestaferðir á Lýtingsstöðum og afþreyingu og upplifun á Bakkaflöt.
Skipið tekur um 148 farþega í 81 klefa. Það er um 112 metrar að lengd og um 16,5 metrar á breidd.