Björgunarsveitin Tindur í Ólafsfirði hefur fengið leyfi til að vera með skoteldasýningu við Ósbrekkusand þann 6. desember næstkomandi.  Sýningin er liður í námskeiði til að mennta stjórnendur við skoteldasýningar á vegum Björgunarskóla Landsbjargar.   Mynd: Úr safni Landsbjargar.