Fjölmargir vegir hafa verið lokaðir á Norðurlandi í dag vegna veðurs.

Lokað er á Þverárfjalli, Öxnadalsheiði, Víkurskarði og Siglufjarðarvegi og ófært í Ljósavatnsskarði. Þæfingsfærð er á milli Dalvíkur og Akureyrar einnig á Grenivíkurvegi. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á velflestum leiðum. Þungfært og stórhríð er í Ólafsfjarðarmúla.

Lokað er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum einnig á Vopnafjarðarheiði og Hófaskarði.