Tekin hefur verið sú ákvörðun að loka Dalbæ fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7. mars þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnayfirvöld eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir vegna COVID-19 veirunnar.

Íbúar heimilisins eru  flestir aldraðir og/eða með undirliggjandi sjúkdóma og því í sérstökum áhættuhópi að veikjast alvarlega af kórónaveirunni.

Allra leiða er leitað til að draga úr hættu á að íbúar  veikist og er lokunin liður í því.

Við sérstakar aðstæður má leita undanþágu hjá deildarstjóra eða hjúkrunarframkvæmdastjóra

Við bendum  fólki einnig á að kynna sér upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is um stöðu mála, en þær geta breyst frá degi til dags.

Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband við hjúkrunarframkvæmdastjóra.

Elísa Rán Ingvarsdóttir,
Hjúkrunarframkvæmdastjóri
Sími 466-1378 og 847-0426
elisa@dalbaer.is

Áríðandi tilkynning frá Dalbæ - LOKUN