Stjórn Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum hefur tekið þá ákvörðun um það að loka byggðinni á Illugastöðum fyrir allri umferð og dvöl frá og með kvöldi mánudagsins 30. mars nk. til 1. maí 2020. Þetta er gert til að verða við tilmælum almannavarna og einnig til að vernda starfsfólk byggðarinnar í baráttunni við þessa veiru sem nú tröllríður okkar landi. Eining-Iðja mun hafa samband við þá félagsmenn sem búnir voru að leigja orlofshús á svæðinu á þessu tímabili.
Það er gert ráð fyrir því að veiran verði í hámarki um páskana. Þetta er ekki auðveld ákvörðun en stjórnin vill frekar taka þessa ákvörðun núna heldur en þegar einhver veikist í byggðinni. Um páskana var von á fólki frá öllum landshornum og því væri hættan mikil á að smit kæmi með einhverjum þeirra.
Eining-Iðja á 14 orlofshús á Illugastöðum, en nokkur þeirra eru leigð til annarra stéttarfélaga yfir sumarið í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu.
