Ljósin verða tendruð á jólatrénu við Menningarhúsið Tjarnarborg sunnudaginn 2. desember kl. 15:00. Aðventuhátíð verður í Ólafsfjarðarkirkju kl. 17:00. Jólamarkaður hefst kl. 13:00 í Tjarnarborg.
- Hátíðarávarp; Ólafur Stefánsson
- Börn úr leikskólanum Leikhólum syngja jólalög
- Júlíus og Tryggvi Þorvaldssynir flytja nokkur vel valin lög
- Barn úr leikskólanum Leikhólum tendrar ljósin á trénu
- Hó, hó, hó! Jólasveinarnir koma í heimsókn með eitthvað gott í pokanum
- Dansað í kringum jólatréð með jólasveinunum
Skíðafélag Ólafsfjarðar býður öllum uppá heitt kakó og piparkökur. Einnig verður nýi troðari Skíðafélagsins til sýnis, kynning á námskeiðum framundan og tilboð á árskortum.
- 13:00-16:00 Hinn árlegi Jólamarkaður Tjarnarborgar opinn í tengslum við tendrun jólatrésins í Ólafsfirði.
- 17:00-18:00 Aðventuhátíð í Ólafsfjarðarkirkju