Hús Frítímans á Sauðárkróki óskar eftir að ráða frístundaráðgjafa í 100 % starfshlutfall. Um er að ræða tímabundna ráðningu frá 6. nóvember 2012 til 31. mars 2013.
- Uppeldismenntun eða sambærileg menntun er æskileg.
- Starfið hentar bæði körlum og konum.
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Umsóknafrestur er til 6. nóvember 2012
Sækja skal um á heimasíðu sveitarfélagsins, eða í gegnum Íbúagáttina.
Upplýsingar um starfið gefur Sigríður A. Jóhannsdóttir, mannauðsstjóri, sigriduraj@skagafjordur.is, s: 455 6000.