Flestir lóðaleigusamningar á Nöfum á Sauðárkróki runnu út síðastliðin áramót. Í kjölfarið voru bréf send á leigutaka þar sem þeim var tilkynnt um að samningar væru runnir út og óskað eftir viðbrögðum leigutaka um hvort þeir hefðu í hyggju að nýta forleigurétt á lóðunum.
Nú liggur fyrir að fjórum lóðum hefur verið skilað til sveitarfélagsins Skagafjarðar. Það eru lóðir númer 13, 31, 36 og 38.
Byggðarráð Skagafjarðar hefur samþykkt að auglýsa lóðir 13, 31, 36 og 38 til leigu.