Vilt þú móta ferðamálafræði til framtíðar?
Í stöðu sérfræðings við Selasetur Íslands og Háskólann á Hólum er tækifæri til þess. Við ferðamáladeild Háskólans á Hólum er lögð stund á rannsóknir og boðið háskólanám í ferðamálafræði og viðburðastjórnun.
Meginmarkmið Selaseturs Íslands er að efla náttúrutengda ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland.
Starfsaðstaða í Selasetri Íslands á Hvammstanga og í háskólaþorpinu á Hólum er góð, fjölskylduvæn samfélög og falleg náttúra. Sjá nánar á www.selasetur.is og www.holar.is.
Í starfinu felst
• kennsla og rannsóknir
• þátttaka í uppbyggingu náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra
• þátttaka í stefnumótun og fjármögnun verkefna Selaseturs Íslands og Háskólans á Hólum í nánu samstarfi við starfsmenn stofnananna
Við leitum að einstaklingi með
• doktorspróf á sviði ferðamálafræða eða tengdra fræðasviða
• góða þekkingu á sviði náttúrutengdrar ferðaþjónustu og/eða byggðaþróunar
• reynslu af stjórnun, rannsóknum, kennslu og þróunarstarfi
• leiðtogahæfileika, ábyrgð, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Laun eru samkvæmt samningum ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. janúar 2013 og er krafist búsetu á Hvammstanga. Umsóknir, ásamt afritum af prófskírteinum, ferilskrá og nöfnum tveggja meðmælenda, berist fyrir 15. október 2012 til Sigurbjargar B. Ólafsdóttur mannauðsstjóra, Háskólanum á Hólum, 551 Sauðárkróki, eða á netfangið sigurbjorg@holar.is.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Helgadóttir deildarstjóri ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, sími 4556300, eða Vignir Skúlason framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands, sími 451 2345.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Heimild: www.holar.is