Kristján Bjarni Halldórsson hefur verið ráðinn í starf skólastjóra Árskóla á Sauðárkróki og mun hefja störf við upphaf næsta skólaárs í haust.

Árskóli er heildstæður grunnskóli þar sem um 400 nemendur stunda nám. Í Árskóla vinnur sérhæft starfsfólk saman að því að mæta ólíkum einstaklingum með krefjandi verkefnum við hæfi hvers og eins. Unnið er í anda hugmyndafræðinnar um skóla án aðgreiningar og lögð er áhersla á að koma til móts við námsþarfir allra nemenda í skólahverfinu.

Kristján Bjarni er með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu og hefur lokið námi til kennsluréttinda, hvort tveggja frá Háskóla Íslands. Auk þess er hann með C.sc í byggingaverkfræði og stundaði einnig doktorsnám í mati á skólastarfi meðfram starfi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Kristján Bjarni hefur starfað hjá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undanfarin 24 ár í ýmsum stöðum, fyrst sem kennari og deildarstjóri í raungreinum og stærðfræði en sem áfangastjóri frá árinu 2016. Hann hefur auk þess í tvígang gegnt stöðu aðstoðarskólameistara í afleysingum.

Skólastarfið í Árskóla er varðað mörgum hefðum sem setja sterkan svip á skólabraginn. Á hverju ári fer fram danshátíð þar sem nemendur 10. bekkjar dansa í sólarhring með aðstoð allra nemenda skólans. Allir bekkir æfa leikrit og setja á svið, alls rúmlega 30 sýningar í félagsheimilinu Bifröst. Auk þess setja 10. bekkingar upp barnaleikrit í fullri lengd og selja inn á sýningar sem hluti af fjáröflun fyrir skólaferðalag til Dannmerkur. Síðan má nefna friðargöngu, þorrablót, íþróttadag og gleðigöngu. Foreldrar og bæjarbúar taka virkan þátt í þessum hefðum. Árskóli var tilnefndur til íslensku menntaverðlaunanna árið 2024 fyrir framúrskarandi skólastarf.

Kristján Bjarni mun taka við stöðunni af Óskari G. Björnssyni sem stýrt hefur skólanum undanfarna áratugi.