Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að ráða Kristin Reimarsson í starf deildarstjóra fræðslu- frístunda- og menningarmála frá 1. janúar 2016. Kristinn hefur starfað sem markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar sl. tvö ár. Áður hafði Kristinn starfað sem sviðsstjóri frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbæjar í fimm ár, verið verkefnastjóri hjá Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts í tvö ár og íþróttafulltrúi Akraneskaupstaðar í fimm ár.