Samhliða auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar við Varmahlíð óskaði Skagafjörður eftir tillögum frá íbúum um heiti á nýjum götum A og B sem skilgreindar eru í skipulaginu. Fjölmargar tillögur bárust og gefst nú almenningi tækifæri til þess að kjósa um nafn.
Frestur til þess að taka þátt í kosningu er 20. október.
Fyrir götu A er kosið um nöfnin:
Reykjarmóar
Reykjarvarmi
Reykjarsíða
Skógarsel
Ármýri
Fyrir götu B er kosið um nöfnin:
Reykjarhæð
Reykjarholt
Reykjarstrókur
Reykjarmelur
Hlíðargata
Árhóll