Karlalið Tindastóls í körfubolta hefur skráð sig í European North Basketball League (ENBL) í vetur. Alls eru 27 lið eru skráð til leiks í keppnina sem leika í einni deild en hvert lið leikur 8 leiki, það eru því fjórir heimaleikir og fjórir útileikir sem Tindastóll spilar á tímabilinu frá október 2025 til febrúar 2026. Eftir það er svo úrslitakeppni.
Það verður ljóst í ágúst hvenær leikirnir fara fram sem einfaldar alla skipulagningu. Heimaleikirnir verða leiknir á Sauðárkróki en Síkið uppfyllir allar þær kröfur sem ENBL setur á félög.
Tindastóll vill með þátttöku sinni halda áfram að vera félag sem býður leikmönnum upp metnaðarfulla umgjörð og utanumhald. Með þátttökunni fær liðið að minnsta kosti 8 auka leiki sem er einmitt það sem leikmenn hafa kallað eftir. ENBL er keppni sem var stofnuð árið 2021 fyrir lið sem vilja taka þátt í alþjóðlegri keppni án allra þeirra miklu reglna sem FIBA setur á sínar keppnir.
Það er von Tindastóls að stuðningsmenn liðsins og allir íslenskir körfuboltaáhugamenn fjölmenni á heimaleiki liðsins og sýni hvað umgjörð um íslenskan körfubolta er spennandi og skemmtileg.