Jólamót UMSS í frjálsíþróttum verður haldið í Íþróttahúsinu í Varmahlíð fimmtudaginn 20. desember og hefst það kl. 16. Keppt verður í aldursflokkum karla og kvenna frá 10 ára aldri. Í kúluvarpi verður skipt í flokka eftir þyngd kúlu.
Keppnisgreinar:
- Kúluvarp og hástökk með atrenu.
- langstökk, þrístökk og hástökk án atrenu.
Heimild: www.tindastoll.is