Tindastóll hefur fengið Steven Beattie í sínar raðir en hann hefur raðað inn mörkunum í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár.
Steven er Írskur leikmaður sem kemur til Tindastóls frá Puerto Rico Islanders en þar áður var hann á mála hjá Toronto FC í Bandarísku MLS-deildinni. Beattie hefur verið síðustu mánuði á æfingum hjá Írska úrvalsdeildarliðinu Dundlak FC.
Hjá Tindastóli er honum ætlað að fylla skarð Ben Everson sem fór til Breiðabliks í síðustu viku.