Vakin er athygli á því að vegna slæmrar stöðu vatnslindarinnar sem sér Varmahlíð fyrir köldu neysluvatni eru íbúar beðnir um að fara sparlega með vatnsnotkun.
Staða lindarinnar er sérstaklega erfið um þessar mundir og grunnvatnsstaða í Skagafirði almennt mjög lág.
Skagafjarðarveitur biðja íbúa sem eru með heita potta að stöðva rennsli í þá tímabundið og forðast notkun þeirra á meðan þetta ástand varir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu Skagafirði.