Ensími fagnar 30 ára afmæli með tónleikum í Bæjarbíói og á Græna hattinum Hljómsveitin Ensími, sem var stofnuð árið 1996, fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári. Af því tilefni mun sveitin halda þrenna afmælistónleika; í Bæjarbíói 12. og 13. mars og á Græna hattinum 28. mars.
Ensími hefur á ferli sínum gefið út sex breiðskífur og átt lög á safnplötum, í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Sveitin hefur komið víða við, bæði hérlendis og erlendis, og hefur á löngum ferli sínum fest sig í sessi sem ein áhrifamesta rokksveit landsins.
Á tónleikunum verður farið yfir ferilinn og leikin vel valin lög af öllum plötum sveitarinnar. Þá er væntanlegt á streymisveitur lagið „Slow Return“, sem hingað til hefur aðeins verið aðgengilegt á útvarpsstöðvum og á tónleikum sveitarinnar.
Liðsmenn Ensími hafa jafnframt verið áberandi í íslensku tónlistarlífi um árabil og starfað með fremsta tónlistarfólki landsins. Frekari afmælisviðburðir verða kynntir síðar.

Tónleikadagar
• Bæjarbíó – 12. mars
• Bæjarbíó – 13. mars (uppselt)
• Græni hatturinn – 28. mars

Ensími
Hrafn Thoroddsen – söngur / gítar
Franz Gunnarsson – gítar / bakrödd
Guðni Finnsson – bassi / bakrödd
Arnar Gíslason – trommur
Þorbjörn Sigurðsson – hljómborð / bakrödd

Miðasala

Bæjarbíó: https://tix.is/event/20618/ensimi-30-ara
Græni hatturinn: https://www.graenihatturinn.is/is/ensimi-28-mar-2026/eid/190