Vegna kvikmyndatöku fyrir sjónvarpsþættina Bless bless Blesi mun hestastóð, alls um sjö hestar hlaupa víðsvegar um tiltekin svæði á Hofsósi mánudaginn 11. ágúst næstkomandi.

Hestafólk mun fylgja stóðinu. Tökurnar munu fara fram í stuttum lotum og munu hestarnir því einungis hlaupa stuttar vegalengdir í senn. Íbúar og gestir eru beðnir um að sýna aðgát.

Hugsanlegir staðir sem farið verður um eru meðal annars:

  • Hvosin (grænt hús á hæðinni)
  • Brúin við bryggjuna
  • Vegurinn hjá kjörbúðinni
  • Nokkrir aðrir staðir víðsvegar um Hofsós