Versnandi veður á Norðurlandi í dag og á morgun. Appelsínugul viðvörun tekur við á Norðurlandi eystra í nótt. Fylgist vel með veðurspá og akstursskilyrðum.
Veðurspá á Norðurlandi vestra:
2. jún. kl. 10:00 – 3. jún. kl. 17:00
Norðan 10-18 m/s og slydda eða snjókoma til fjalla. Á fjallvegum má því búast við skertu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs.
Talsverð eða mikil rigning. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Fólk er hvatt til þess að sýna aðgát.
Veðurspá á Norðurlandi eystra:
2. jún. kl. 12:00 – 3. jún. kl. 03:00
Norðan 8-13 m/s og slydda eða snjókoma til fjalla með hálku á vegum og versnandi akstursskilyrðum, og einnig á láglendi undir kvöld. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs.
3. jún. kl. 03:00 – 13:00
Norðan 13-20 m/s og snjókoma og skafrenningur. Búast má við versnandi akstursskilyrðum með samgöngutruflunum. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki vanbúin til vetraraksturs og ekki ráðlegt að leggja í ferðalög til fjalla.