Hestamannafélagið Gnýfara í Ólafsfirði hefur óskað eftir að Fjallabyggð greiði félaginu fyrirfram rekstrarstyrk næstu ára til þess að hægt sé að greiða niður skuld við Arion banka vegna reiðskemmu félagsins. Einnig hefur Gnýfari óskað að gengið verði frá kaldavatnsinntaki í skemmuna án íþyngjandi kostnaðar fyrir félagið.
Félagið var stofnaði þann 2. júní árið 1969 og verður því 50 ára á næsta ári.
Bæjarráð Fjallabyggðar tók erindið fyrir á fundi í gær en ákvað að fresta erindinu til næsta fundar bæjarráðs. Ákvörðun um greiðslu rekstrarstyrks liggur því ekki fyrir.
