Fjölbreytt hátíðardagskrá verður í Fjallabyggð í dag á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
Á Siglufirði verður hátíðarathöfn við minnisvarða sr. Bjarna Þorsteinssonar við Siglufjarðarkirkju. Að henni lokinni eru gestir hvattir til að ganga að Þjóðlagasetri Sr. Bjarna þar sem boðið verður upp á kaffi og konfekt. Hið árlega Kaffihlaðborð Blakfélags Fjallabyggðar verður haldið í Einingu-Iðju á Siglufirði frá kl. 15:00-17:00 og í ár mun UMF Glói endurvekja 17. júní hlaupið á Malarvellinum á Siglufirði fyrir krakka á fædd 2006-2013 og hefst hlaupið kl. 10:30. Sýning Kristínar Gunnlaugsdóttur verður opin í Kompunni í Alþýðuhúsinu en sýningin var opnuð þann 8. júní sl. og verður hún opin frá kl. 14:00-17:00 fram til 22. júní nk. Hin árlega ljósmyndasýning á Ljósmyndasögusafninu Saga-Fotografica á Siglufirði verður formlega opnuð en þar verða til sýnis myndir eftir Ragnar Axelsson og Leif Þorsteinsson. Opið verður á safninu þennan dag frá kl. 13.00-17:00 en safnið verður opið alla daga í sumar frá kl. 13:00-16:00. Aðgangur að safninu er ókeypis. Ljóðasetur Íslands verður opið milli 14:00-15:00 og þar mun Þórarinn Hannesson flytja eigin lög við ljóð eftir Siglfirðinga. Þjóðlagasetur Sr. Bjarna er opið og boðið verður upp á kaffi og Lýðveldisköku í tilefni dagsins.
Í Ólafsfirði við Menningarhúsið Tjarnarborg verður glæsileg hátíðardagskrá þar sem í boði verða m.a. leiktæki, hoppukastalar, geimsnerill, stærsta vatnsrennibraut landsins opin og margt fleira fyrir alla fjölskylduna.
Íbúar Fjallabyggðar eru hvattir til að mæta og fagna þessari hátíðarstund saman.
Í ár heldur Lýðveldið Ísland upp á 75 ára afmæli. Af því tilefni verður gestum í Fjallabyggð boðið upp á Lýðveldisköku við Þjóðlagasetur sr. Bjarna um kl. 12:15 og við Tjarnarborg kl. 15:00.