Garnaveiki hefur verið staðfest á sauðfjárbúi í Tröllaskagahólfi, nánar tiltekið á bænum Brúnastöðum í Fljótum. Garnaveiki hefur ekki greinst í hólfinu frá árinu 2008. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu.
Tilfellið uppgötvaðist við smölun um síðustu helgi og eftir að héraðsdýralæknir hafði skoðað kindina var henni lógað, sýni tekið úr henni og sent til greiningar á Keldum. Sýnið reyndist jákvætt m.t.t. garnaveiki.
Orsök sjúkdómsins er lífseig baktería af berklaflokki. Helstu einkenni hennar eru hægfara vanþrif með skituköstum. Í þeim hjörðum sem veikin kemur upp getur einnig verið þó nokkuð um „heilbrigða smitbera“. Meðgöngutími í sauðfé er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í 1- 1 ½ ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni.
Matvælastofnun greindi fyrst frá þessu á vef sínum.

