Erfitt að æfa fótbolta í Fjallabyggð vegna snjóa
Það styttist í fyrsta leik tímabilsins hjá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar, en mikill snjór hefur einkennt þennan vetur og langt virðist í vorið. Leikmenn voru því beðnir um að koma með skóflu…
Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar auglýsir styrki
Menningarráð Dalvíkurbyggðar auglýsir opið fyrir umsóknir um styrki í Menningarsjóð sveitarfélagsins vegna ársins 2013 og þurfa umsóknir að berast fyrir 12. maí nk. á þar til gerðum eyðublöðum. Við úthlutun…
Síðustu skíðadagar vetrarins í Fjallabyggð
Skíðasvæðið í Skarðsdal verður opið á morgun ,sumardaginn fyrsta og síðasti opnunardagurinn í vetur verður sunnudagurinn 5. maí. Það er því um að gera að drífa sig í fjallið og…
Úrslit í Norðurlandsmóti í badminton
Norðurlandsmótið í badminton var haldið á Siglufirði um s.l. helgi. Úrslitin urðu eftirfarandi: Úrslit Keppendur frá TBS – Samherja – TB-KA Þrefaldir meistarar Daníel Smári Oddbjörnsson U-15 sveinar Sigríður Ása…
Björgunarsveitarmenn frá Grenivík sóttu kindur í Þorgeirsfjörð
Björgunarsveitarmenn úr Ægi á Grenivík voru við æfingar á Látrum og Keflavíkurdal á sunnudaginn sl. þegar að tilkynnt var um þrjár kindur í Þorgeirsfirði. Í framhaldinu sóttu þeir kindurnar og…
350 manns mættu frítt á skíði í Skarðsdalnum
Sparisjóður Siglufjarðar bauð frítt á skíði í Skarðsdalnum á Siglufirði s.l. sunnudag. Um 350 manns nýttu sér tækifærið og mættu í boði SPS og fengu sér grillaðar pylsur og nutu…
Akureyringar komnir yfir 18 þúsund
Íbúum Akureyrar fjölgaði um 63 á fyrsta ársfjórðungi og voru í lok mars samtals 18.030, en um áramótin voru íbúar sveitarfélagsins 17.966. Íbúum Grýtubakkahrepps fjölagði um tíu á tímabilinu og…
Andrésarleikarnir hefjast í vikunni á Akureyri
Skíðafélag Akureyrar heldur 38. Andrésar andar leikana í skíðaíþróttum í Hlíðarfjalli á Akureyri, dagana 24.-27. apríl. Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með allt að 800 keppendum á aldrinum 6-15 ára…
Dagforeldra vantar á Dalvík
Dagmóður/ föður vantar á Dalvík. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar sem með leyfi frá félagsmálaráði Dalvíkurbyggðar geta tekið börn í daggæslu að uppfylltum tilskildum skilyrðum. Dalvíkurbyggð greiðir niður dagvistargjöld fyrir börn…
Kerling valið einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar
Eyjafjarðarsveit hefur gert könnun um hvert sé einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar. Niðurstöður eru þær að fjallið Kerling hlaut 37 atkvæði af 45 sem bárust. Mörg skemmtileg svör fylgdu atkvæðum. Powered by WPeMatico
Laus störf hjá Heilbrigðisstofnuninni Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð óskar eftir að ráða í eftirtalin störf: Hjúkrunarfræðing í 80% starf til eins árs frá og með 1. júní næstkomandi. Möguleiki á áframhaldandi ráðningu. Starfið fer aðallega fram…
Bátur frá Siglufirði veiddi merkta grásleppu
Hafborg SI 4 hefur gert út á grásleppu eins og flestir aðrir bátar frá Siglufirði og hafa veiðar gengið með ágætum. Í lok vikunnar fengu frændurnir Kjartan og Arnar rafeindamerkta…
Saga Eurovision tónleikar á Dalvík
Tónleikar verða í Íþróttamiðstöð Dalvíkur, sunnudaginn 21. apríl. Það verður Friðrik Ómar, Regína Ósk og Selma Björns sem stíga á svið kl. 20 ásamt Eurobandinu. Í þessari glæsilegu tónleikasýningu verður…
Bingó á Allanum Siglufirði
Bingó verður haldið næstkomandi sunnudag 21. apríl klukkan 16:00 á Allanum Siglufirði. Spjaldið kostar 300 krónur. Spilaðar verða þrjár umferðir, glæsilegir vinningar. Komið og styrkið gott málefni. Slysavarnadeildin Vörn. Powered…
Sparisjóður Siglufjarðar býður frítt á skíði
Sunnudaginn 21. apríl n.k. er íbúum Fjallabyggðar og gestum boðið á skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðinu frá kl. 14.00 til 20.00. Frítt í lyfturnar, allur skíða- og brettabúnaður lánaður gjaldfrjálst á…
Framboðskynning í Menntaskólanum á Tröllaskaga
Framboðskynning verður í Menntaskólanum á Tröllaskaga, föstudaginn 19. apríl. Gestir verða: Bergur Þorri Benjamínsson, 6. sæti Sjálfstæðisflokks, Brynhildur Pétursdóttir, 1. sæti Bjartri framtíð, Gísli Tryggvason, 1. sæti Dögun og Steingrímur…
Norðurlandsmót í Badminton á Siglufirði
Norðurlandsmót í badminton verður haldið á Siglufirði laugardaginn 20. apríl n.k.Keppt verður í unglinga- , kvenna og karlaflokkum. Mótið hefst kl: 10. Reiknað er með að fullorðnir byrji að spila…
Dómaranámskeið í Ólafsfirði
Mánudaginn 22. apríl næstkomandi verður dómaranámskeið í Vallarhúsi Knattspyrnufélags Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Námskeiðið er grunnnámskeið og hefst kl. 18. Allir leikmenn í 3. flokki KF eru skyldugir til að mæta.…
Kvennakórinn Sóldís syngur í Bergi Menningarhúsi
Laugardaginn 20. apríl kl. 20:30 syngur kvennakórinn Sóldís úr Skagafirði í Bergi Menningarhúsi á Dalvík fyrir gesti og gangandi. Efnisskráin er fjölbreytt og syngur kórinn á nokkrum tungumálum. Miðaverð 2.500…
Aðalfundur Ferðamálafélags Hríseyjar
Aðalfundur Ferðamálafélags Hríseyjar verður haldinn í húsi Hákarla Jörundar miðvikudaginn 24. apríl kl. 17.00. Kaffi og með því. Venjuleg aðalfundarstörf. Powered by WPeMatico
Blakmót yngriflokka á Akureyri um helgina
Um næstu helgi fer fram Íslandsmótið í blaki hjá yngri flokkum og verður mótið haldið í KA- heimilinu á Akureyri. Um er að ræða seinni hluta mótsins og að þessu…
Gamlar myndir frá Tónskóla Ólafsfjarðar
Tónskóli Fjallabyggðar hefur birt gamlar skannaðar myndir frá Tónskóla Ólafsfjarðar. Slóðin er hér. Powered by WPeMatico
Vorhátíð Grunnskóla Fjallabyggðar
Vorhátíð Grunnskóla Fjallabyggðar verður fimmtudaginn 18. apríl kl. 17 í Menningarhúsinu Tjarnarborg í Ólafsfirði fyrir 1.-7. bekk. Rúta fer frá Torginu kl. 16:30 og til baka að sýningu lokinni. Aðgangseyrir:…
Þýska Ríkissjónvarpið með þátt um Grímsey
Í síðustu viku var sjónvarpsfólk frá þýsku ríkissjónvarpsstöðinni ARD statt í Grímsey við tökur á heimildaþætti um þorp og bæi við heimskautsbaug. Auk þess að taka upp efni í Grímsey…
Sumarstörf í Fjallabyggð
Fjallabyggð auglýsir laus til umsóknar störf við slátt í Fjallabyggð og flokksstjóra vinnuskóla sumarið 2013. Vinna hefst um mánaðarmótin maí/júní og er unnið til 9. ágúst. Leitað er eftir hressum,…