Trilludagar er ein af þessum hátíðum í Fjallabyggð sem hefur fest sig í sessi og orðin árlegur viðburður. Frítt er inn á hátíðina, sem haldin verður laugardaginn 27. júlí næstkomandi. Hátíðin er fyrir alla fjölskylduna og stendur frá kl. 10-16 á bryggjunni við Rauðkutorg, en þar verða í boði siglingar, grill og gleði.
Hátíðin er haldin af Fjallabyggð í samvinnu við eldhressa trillukarla, Kiwanisklúbbinn Skjöld á Siglufirði sem annast flökun og grill á hafnarbakkanum, Björgunarsveitina Stráka sem annast gæslu á sjó og Ungliðasveitirnar Smá Stráka á Siglufirði og Djarf í Ólafsfirði sem m.a. annast gæslu á landi.
