Fimmtudaginn 7. mars verður fjölskyldufjör hjá Byggðasafni Skagfirðinga í Glaumbæ, í tilefni af vetrarfríi Grunnskólanna í Skagafirði. Farið verður í ratleik um safnasvæðið, völuspá verður í gamla bænum og sýndarveruleikasýningin „Menning, tunga og tímagöng til 1918“ verður í Gilsstofu. Dagskráin verður frá kl. 14-16. Frítt verður á safnið fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Í sýndarveruleikasýningunni gefst gestum kostur á því að skyggnast inn í íslenskan veruleika ársins 1918 með aðstoð 360° sýndarveruleikagleraugna og fræðast á lifandi hátt um samgöngur, verslun og viðskipti, um landbúnað og sjósókn en einnig um torfbæina, sem voru bæði heimili og vinnustaður fólks árið 1918. Sýninguna vann Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður hjá Skotta Film.
Klukkan 14:30 verður hægt að taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti safnsins um safnasvæðið. Þá verður einnig völuspá í gamla bænum.
Í Áskaffi verður hægt að fá rjúkandi heitt súkkulaði og pönnuköku á tilboðsverði, á 500 krónur.
Heimild: skagafjordur.is