Sunnudaginn 7. október kl. 14:00 verður fjáröflunarbingó á Verbúðinni 66 í Hrísey. Það er nemendaráð Hríseyjarskóla sem stendur fyrir bingóinu en vorið 2019 verður farið í skólaferðalag erlendis með þrjá elstu árgangana í Hríseyjarskóla eins og hefð er fyrir í skólanum.

Veglegir vinningar í boði.  Til sölu léttar veitingar og nammi.

Allir velkomnir.