Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur ákveðið að styrkja björgunarsveitirnar í Fjallabyggð um kr. 1.500.000 hvora sveit. Bæjarstjórn þakkar björgunarsveitunum fyrir mikið og óeigingjarnt starf við björgunarstörf á meðan að óveðrið gekk yfir.

Í óveðri liðinnar viku gegndu Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði og Björgunarsveitin Tindur í Ólafsfirði lykilhlutverki í viðbragðsaðgerðum. Liðsmenn sveitanna stóðu vaktina dag og nótt. Þarna eru okkar sérfræðingar sem hafa kunnáttu til að takast á við erfiðar aðstæður og eru vel tækjum búnir. Í aðstæðum sem slíkum eru Björgunarsveitirnar okkar lykilaðilar.

Landsmót / Landsbjörg: 22 unglingasveitir björgunarsveita frá flestum landshlutum hafa verið við fjölbreyttar æfingar og þjálfun, undir stjórn eldri og reyndari félaga. Alls munu þátttakendur verið um 300 talsins