Fjallabyggð kallar til samráðsfundar um sameiginlegt markaðsátak með ferðaþjónustu- og afþreyingaraðilum í Fjallabyggð. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarborg fimmtudaginn 7. maí nk. kl. 17:00-1900. Á fundinum verða einnig kynnt fimm átaksverkefni til uppbyggingar ferðamannastaða.
Umræðuefni fundarins eru:
17:00-18:45 Sameiginlegt markaðsátak í Fjallabyggð
Dagskrá:
- Samstillt átak í markaðsmálum
- Staða ferðaþjónustunnar
- Markaðsleiðir – Tækifæri í markaðssetningu
- Umræður
18:45-19:00 Uppbygging ferðamannastaða
Dagskrá:
- Áfangastaðaáætlun (DMP)
- Kynning á fimm uppbyggingarverkefnum í Fjallabyggð
Skráning verður á fundinn vegna fjöldatakmarkana og gætt verður að 2 metra reglunni.
Skráning á viðburðinn er hér.