Fundur haldinn með áhöfnum skipa FISK Seafood og stjórnendum þess 5 júní 2012 á Sauðárkróki.
Á fundinn mættu ríflega 90 manns.
Áhafnir skipa FISK Seafood senda frá sér eftirfarandi ályktun:

,,Fundurinn  fordæmir vinnubrögð núverandi stjórnvalda í framgöngu sinni í breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Frumvörpin sem lögð hafa verið fram eru vanhugsuð og bein aðför að okkur sem erum starfsmenn stærri sjávarútvegsfyrirtækja svo og landsbyggðinni allri.

Jafnframt skora fundarmenn á stjórnvöld að draga þessi frumvörp til baka í óbreyttir mynd, og vinni að frumvarpi sem leiði til sem mestra sátta á meðal þegna landsins ´´

Áhafnir:

  • Arnars HU 1
  • Málmeyjar SK 1
  • Klakks  SK 5
  • Örvars SK 2