Tindastóll heimsótti botnlið ÍH í 3. deild karla í gær. ÍH er þegar fallið og hefur verið að tapa leikjum stórt undanfarið.  Tindastóll er í baráttu um 4.-5. sæti deildarinnar og var þetta næstsíðasti leikurinn á Íslandsmótinu í 3. deildinni.

Heimamenn komust nokkuð óvænt yfir strax á 5. mínútu leiksins. Stólarnir voru fljótir að svara með marki á 8. mínútu. Staðan 1-1.

Aftur komst ÍH yfir með marki frá Brynjari Jónassyni á 40. mínútu og staðan orðin 2-1.  Stólarnir náðu að jafna fyrir leikhlé og var staðan því jöfn 2-2.

Tindastóll óð síðan í færum í síðari hálfleik og tókst að nýta vel færin. Tvö mörk komu í byrjun síðari hálfleiks og var staðan orðin 2-4. Arnar Ólafsson gerði svo tvö mörk með skömmu millibili á 62. mínútu og 65. mínútu og var hann kominn með þrennu í leiknum. Staðan orðin 2-6.

Á síðustu 10 mínútum leiksins gerðu Stólarnir þrjú mörk og unnu leikinn örugglega 2-9 og eru í 4. sæti deildarinnar þegar einn leikur er eftir.

Tindastóll á heimaleik við KFK í síðasta leik mótsins, 13. september kl. 14:00.