Það hefur verið gleði og fjör í Fljótunum um Verslunarmannahelgina, en þar hafa farið fram Félagsleikar Fljótamanna, samveru- og sveitahátíð af gamla skólanum.
Hátíðin hófst á föstudagskvöld, með flatbökuveislu á Sólgörðum og tónleikum með hljómsveitinni Sérfræðingar að sunnan í Félagsheimilinu Ketilási.. Dagskrá helgarinnar er hin glæsilegasta og má þar nefna ýmsa tónleika og tónlistarviðburði, Íslandsmót í félagsvist, Tíuþúsund titlar á Ökrum, hestar hitta börn í Langhúsum, Húsdýragarðurinn Brúnastöðum er opinn alla helgina, Hrafna-Flóka gerningur að Ysta Mói, Dalalífs “bar-kviss” á Ketilási, Flótahlaup Orkusölunnar, kjötsúpuveisla aldarinnar, gönguferðir með leiðsögn, fyrirlestrar og opnun sýningar um Guðrúnu frá Lundi á Sólgörðum og lýkur svo hátíðarhöldunum með varðeldi og söng á Lambanesi í kvöld.
Enginn aðgangseyrir er á viðburði helgarinnar og sala veitinga er í höndum heimamanna. Ágóðinn rennur til góðra málefna.
Það eru Íbúasamtökin og hollvinir sem standa fyrir Félagsleikum Fljótamanna 2019.
Dagskrá dagsins má finna á vef Skagafjarðar.