Fasteignin Faxatorg á Sauðárkróki hefur verið auglýst til sölu ásamt tilheyrandi leigulóðarréttindum. Um er að ræða skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum, alls 1272,1 fm.  Brunabótamat hússins er rúmlega 432 milljónir. Óskað er eftir tilboði í eignina.
Aðalbyggingin var byggð árið 1966 og viðbygging árin 1996-1997. Í húsinu eru leigð út skrifstofurými og eru flest rými í útleigu. Bílastæði sunnan við húsið fylgir.

Húsnæðið er með þrjú fastanúmer og er vel staðsett og stutt í ýmsa þjónustu.

Arion banki er einn leigenda í húsnæðinu og voru endurbætur hjá þeim innanhúss í febrúar á þessu ári, þegar útibúið var gert nútímalegra og er nú boðið upp á sjálfsafgreiðslu.

Fasteignasala Sauðárkróks er með húsið í sölu. Nánari upplýsingar eru á fasteignavef mbl.is