Íþróttamaður Tindastóls árið 2025 er Emma Katrín Helgadóttir.
Emma Katrín vann á árinu þrjá Íslandsmeistaratitla í badminton, þar á meðal tvöfalda Íslandsmeistaratitla í 1. deild fullorðinna í einliða- og tvíliðaleik. Hún er Íslandsmeistari unglinga í tvíliðaleik og er í dag í 6. sæti styrkleikalista kvenna í einliðaleik.
Emma er í afrekshópi Badmintonambands Íslands, hefur keppt fyrir hönd Íslands á alþjóðlegu móti og tekið þátt í norrænum æfingabúðum í Noregi. Hún hefur jafnframt hafið þjálfaraferil sinn, lokið Þjálfaramenntun 1A hjá ÍSÍ og starfar í vetur sem þjálfari hjá Badmintondeild Tindastóls. Emma er metnaðarfull, samviskusöm og afar góð fyrirmynd annarra iðkenda.