Leik- og söngdagskráin „Ekki skamma mig séra Tumi“ verður sýnd á Bifröst á Sauðárkróki laugardaginn 28. júlí klukkan 20. Dagskráin er um vinina Jónas Hallgrímsson, rithöfund og ljóðskáld og vin hans og Tómas Sæmundsson. Guðrún Ásmundsdóttir rekur sögu þeirra sem hefur verið hulin íslenskum áhorfendum fram að þessu.
Guðrún hefur langa og mikla reynslu í því að flytja sögu sem þessi á lifandi og skemmtilegan hátt. Inn í verkið fléttast síðan ýmiskonar lög frá ýmsum tímum, sum eftir Jónas Hallgrímsson – t.d. Jeg elsker dig, önnur sem tengjast lífi hans og störfum á annan hátt. Alexandra Chernyshova sópran söngkona syngur. Leik- og söngdagskráin fjallar um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar og tengsl hans og vinar Tómasar Sæmundssonar á mismunandi tímum ævi þeirra. Verkið tekur einnig á þeim erlendum áhrifum sem Jónas var fyrir og koma þau vel fram í söngdagskránni en lögin eru sungin á fimm tungumálum alls. Inn í dagskránna fléttast síðan vídeóverk sem Arna Valsdóttir vídeólistamaður hefur gert um Hraundragana í Öxnadal og er tileinkað ljóði Jónasar “Ferðalok”. þrír hljóðfæraleikarar koma að verkinu en leikið er undir lögin á píanó, fiðlu og selló.
Markmið er að kynna fyrir íslenskum áhorfendum ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar og vináttutengsl hans við Tómas Sæmundsson á léttan og skemmtilegan hátt með leik- og söngdagkrá. Guðrún Ásmundsdóttir er í hlutverki sögumanns og fléttar inn í söguna leik og söng eins og við á hverju sinni. Ýmislegt kemur fram í verkinu sem íslenskir áhorfendur vissu ekki um Jónas og Tómas og á það því fullt erindi til þeirra.
Sýning: Bifröst á Sauðárkróki Laugardaginn 28. júlí klukkan 20.
Hlutverk:
Tómas Sæmundsson leikur Davíð þór Jónsson Jónas Hallgrímsson leikur Ragnar Kjartansson Sögumaður og höfundur handrits er Guðrún Ásmundsdóttir. Söngkona og leikandi er Alexandra Chernyshova. Myndlistarkonur og leikendur eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Arna Guðný Valsdóttir Heiðursgestur og leikandi í sýningunni er Þráinn Karlsson.