Bólusetningar fyrir 12 ára og eldri fara fram á Heilsugæslustöð HSN á Sauðárkróki (gengið inn um aðalinngang). Öllum 16 ára og eldri býðst örvunarskammtur þegar að lágmarki 4-5 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu. Einstaklingum sem ekki hafa hafið bólusetningar eða ekki hafa getað nýtt sér fyrri boð er velkomið að koma á auglýstum opnunartíma á Akureyri. Ekki er þörf á að hafa strikamerki með í för, bara mæta á staðinn.
Dagsetningar:
- 16. febrúar kl. 13-15
- 2. mars kl. 13-15
- 16. mars kl. 13-15
- 30. mars kl. 13-15
Bólusettir einstaklingar 70 ára og eldri geta fengið örvunarskammt þegar 3 mánuðir hafa liðið frá grunnbólusetningu.
Börn sem hafa náð 12 ára aldri eru velkomin í sína fyrstu bólusetningu í fylgd forráðamanna.
Bólusett verður með Pfizer, óháð því bóluefni sem notað var við grunnbólusetningu.
Munið að 14 dagar þurfa að líða milli inflúensubólusetningar og bólusetningar gegn COVID-19.
Þeir sem hafa fengið staðfest COVID-19 smit þurfa að láta líða a.m.k. 3 mánuði frá veikindum að bólusetningu.
Sjá nánar á vef stjórnarráðsins:
COVID-19: Bólusetningarátak; örvunarskammtar og óbólusettir