Sigríður Ólafsdóttir, arkitekt fyrir hönd eigenda Sóta Lodge hefur óskað eftir formlegu samtali við sveitarfélagið Skagafjörð vegna mögulegrar uppbyggingar á Sólgörðum í Fljótum.

Skipulagsnefnd Skagafjarðar hefur samþykkt að bjóða eigendum Sóta Lodge á fund og ræða málin.

Virkilega áhugavert verkefni sem verður gaman að fylgjast með.