Nýir eigendur taka við versluninni Hlíðarkaup á Sauðárkróki föstudaginn 24. júlí. Ásgeir Björgvin Einarsson opnaði verslunina fyrir 35 árum hefur selt versluninna til nýrra eigenda. Í pistli á samfélgsmiðlum þá þakkar hann starfsfólki og viðskiptavinum fyrir samfylgdina í gegnum árin. Hann segir ákvörðunina ekki hafa verið auðvelda.
Ekki kemur fram í tilkynningu hver nýr eigandi er.