105. ársþing UMSS verður haldið þriðjudaginn 25.mars kl. 17:00 í Félagsheimilinu Tjarnabæ, Sauðárkróki. Formenn aðildarfélaga eru sjálfkjörnir sem fulltrúar á ársþing og varamenn í forföllum þeirra.
Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags ákvarðast að öðru leiti af fjölda félagsmanna aðildarfélaganna. Tala félagsmanna skal miðuð við tölu gjaldskyldra félaga (18 ára og eldri) við síðustu áramót.
– 2 fulltrúar auk formanns fyrir 0-100 félagsmenn.
– 3 fulltrúar auk formanns fyrir 101-150 félagsmenn.
– 4 fulltrúar auk formanns fyrir 151-200 félagsmenn.
Síðan bætist við einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 100 félagsmenn að 1000 félögum, en einn fulltrúa á hverja byrjaða 200 félaga þar fyrir ofan.
Atkvæðisrétt á þingum sambandsins hafa einungis kjörnir fulltrúar aðildarfélaganna og stjórn UMSS. Sérhver ungmennafélagi hefur málfrelsi og tillögurétt hvar sem er á fundum ungmennafélaganna. Auk þess eiga seturétt á þinginu með málfrelsi og tillögurétt, fulltrúar í sérráðum UMSS, aðrir sem kjörnir eru í trúnaðarstöður hjá sambandinu og þeir aðrir sem stjórn UMSS býður til þings.