Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa undirritað samkomulag um Eyrarrósina til næstu 4 ára. Með Eyrarrósinni er sjónum beint að að framúrskarandi menningarverkefnum á starfssvæði Byggðastofnunar, þ.e. utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósin vekur athygli á og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Verkefnið verður með líku sniði og verið hefur allt frá stofnun þess árið 2005, en þó hefur sú breyting verið gerð að verðlaunaféð er nú hækkað í 2 milljónir. Auk þess fá þeir tveir sem að auki eru tilnefndir til verðlaunanna 500.000 kr. hver.
Eliza Reid forsetafrú er verndari Eyarrósarinnar og afhenti hana við hátíðlega athöfn í dag í Verksmiðjunni á Hjalteyri við Eyjafjörð, en Verksmiðjan fékk einmitt verðaunin í fyrra. Alls bárust 37 umsóknir um viðurkenninguna og fær Eistnaflug tvær milljónir króna í verðlaunafé, auk viðurkenningarinnar. Um fimmtíu rokksveitir munu koma fram á hátíðinni í ár en þar hafa bæði komið fram þekktar íslenskar og erlendar hljómsveitir, auk þess sem stutt er við bakið á ungum og upprennandi sveitum. Aðaláherslan er lögð á þungarokk og aðrar jaðartónlistarstefnur.
Einnig voru tilnefnd til Eyarrósarinnar í ár Alþýðuhúsið á Siglufirði og Vesturfarasetrið á Hofsósi.