Í tilefni safnadagsins sunnudaginn 18. maí næstkomandi verður í fyrsta sinn boðið upp á opið hús í varðveislurými Byggðasafns Skagfirðinga í Borgarflöt 17D á Sauðárkróki frá kl. 14-16.
Þetta er einstakt tækifæri til að virða fyrir sér þann safnkost sem ekki er í sýningum safnsins og til að berja varðveislurýmið augum.
Einnig verður frítt að heimsækja safnsvæðið í Glaumbæ milli kl. 14-16 og boðið upp á leiðsögn kl. 14. Þá verður kaffihlaðborð á boðstólnum í Áshúsi.