Það styttist í stórskemmtilegt körfuboltatímabil í Síkinu á Sauðárkróki og undirbúningur beggja liða Tindastóls í fullum gangi. Sala árskorta er hafin og nokkrir æfingaleikir eru framundan.
Í kvöld spilar karlaliðið Tindastóls við Hött, á Egilsstöðum og svo hér heima næstkomandi föstudagskvöld.
Tímabilið hefst svo þann 30. september þegar kvennalið Tindastóls sækir Haukakonur heim. Þann 1. október spilar karlalið Tindastóls sinn fyrsta leik í ENBL Evrópukeppninni og þann 4. október hefja þeir leik í Bónusdeildinni, þegar þeir spila gegn Val á Hlíðarenda í Reykjavík.
Dagskrá æfingaleikja er sem hér segir:
10.sept – kvennaliðið gegn Ármanni í Reykjavík
12.sept – karlaliðið gegn Hetti, Síkinu, kl 19.15
17.sept – karlaliðið gegn Stjörnunni, Síkinu, kl 19.15
20.sept – karlaliðið gegn Ármanni, Síkinu, kl 17.00
20.sept – kvennaliðið gegn Ármanni, Síkinu, fljótlega eftir að karlaleiknum lýkur
23.sept – kvennaliðið gegn Þór Akureyri, Síkinu kl 19.15
25. sept – kvennaliðið gegn Þór, á Akureyri (tímasetning óstaðfest)
25.sept – karlaliðið gegn Þór Þorlákshöfn, Síkinu, kl 19.15
Miðaverð: 1000.-