Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar boðar til aðalfundar miðvikudaginn 16. maí kl. 20.00 í skólahúsinu í Ólafsfirði.  Stjórnarmenn sem gefa áfram kost á sér eru, Björk Óladóttir, Diljá Helgadóttir, Katrín Freysdóttir, Katrín Sif Andersen og Guðrún Þorvaldsdóttir. Hugborg Inga Harðardóttir formaður og Telma Björk Birkisdóttir gjaldkeri hafa ákveðið að hætta og vantar því í stjórnina.

Fundarefni:

1.     Kosning fundarstjóra og fundarritara

2.     Skýrsla stjórnar

3.     Reikningar lagðir fram til samþykktar

4.     Kosning formanns foreldrafélagsins og annarra stjórnarmanna

5.     Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga

6.     Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði

7.     Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins

8.     Önnur mál

Vonumst til að sjá ykkur sem flest á aðalfundinum. Léttar veitingar í boði.

Fyrir hönd stjórnar Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar,

Hugborg Inga Harðardóttir, formaður.