Nemendur 6.-10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar hlupu í vikunni í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Alls voru það 79 nemendur sem tóku þátt og hlupu þeir samtals 655 km. Veðrið lék við hlauparana, hlýtt var í veðri, logn og smá rigning, eða fullkomið hlaupaveður. Á næstu dögum munu svo krakkarnir innheimta áheitin sem þeir söfnuðu með hlaupinu.