Á árinu 2019 heimsóttu 26.000 gestir Síldarminjasafnið á Siglufirði. Fækkun var á milli ára, eða um 5%, sem skýrist af miklum fjölda gesta á samnorrænni strandmenningarhátíð sem haldin var á síðasta ári.

Enn eru erlendir ferðamenn fleiri en innlendir gestir, eða um 60%. Þá heimsóttu um 700 nemendur á öllum skólastigum í Fjallabyggð safnið í skipulögðum námsheimsóknum og íbúar Fjallabyggðar eru jafnframt tíðir gestir á safninu og voru um 650 á árinu.
Augljóst er að ferðamannatímabilið er að lengjast og gestum fjölgar ár frá ári, sérstaklega yfir vetrarmánuðina því í fyrsta sinn taldi enginn mánuður ársins færri en 100 gesti.
Skipulagðar leiðsagnir um safnið voru 355 á árinu og hafa aldrei verið fleiri.

Þetta kemur fram á vef Síldarminjasafnsins.

Við Síldarminjasafnið