Fjölbreytt dagskrá er á Sauðárkróki og í Skagafirði á þjóðhátíðardaginn.
Dagskrá:
12:00 Teymt verður undir börnum við Skagfirðingabúð
12:30 Andlitsmálun við Skagfirðingabúð
- Félagar úr Skátafélaginu Eilífsbúum selja gasblöðrur.
13:00 Skrúðganga frá Skagfirðingabúð að íþróttavelli.
14:00 Hátíðardagskrá á íþróttavellinum:
- Hátíðarræðu flytur Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, kennari við Grunnskólann austan Vatna.
- Lagaflutningur – Matthildur Ingimarsdóttir syngur.
- Ingi Sigþór og Róbert Smári koma fram ásamt Fúsa Ben.
- Ingó töframaður verður með sýningu.
- Vígsla á nýja gervigrasvellinum.
Í framhaldi af hátíðardagskrá heldur gleðin áfram!
- Hvolpasveitin kíkir í heimsókn.
- Hoppukastalar.
- Leikir og þrautir.