Útskrift Sjúkraflutningaskólans var haldin í Háskólanum á Akureyri föstudaginn 1. júní. Alls voru útskrifaðir 150 nemendur.  Af þessum 110 nemendum útskrifuðust 74 með grunnréttindi sem sjúkraflutningamenn (EMT) að loknu 272 klst grunnnámskeiði.  42 luku 380 klst. framhaldsnámskeiði í sjúkraflutningum (EMT-Advanced) og er það fyrsti hópurinn sem lýkur því námi eftir endurskoðun og endurnýjun námsins.  34  luku 40 klst námi sem Vettvangsliðar (First Responders).

Vettvangsliðanám er ætlað þeim einstaklingum sem eru líklegir til að verða fyrstir á vettvang slysa, s.s lögreglu, slökkviliðs- eða björgunarsveitarmenn og almenningur þar sem langt er í aðrar bjargir. Námskeiðið er byggt á viðurkenndum bandarískum staðli og staðfært að íslenskum aðstæðum og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu.

Eitt vettvangsliðanámskeið var fyrir starfsmenn Isavia sem sinna björgunar- og slökkviþjónustu á Keflavíkurflugvelli, eitt námskeið fyrir Securitas í Reykjavík sem sinna útköllum vegna neyðarhnappa í heimahúsum, eitt fyrir starfsmenn Isavia á Akureyrarflugvelli sem sinna slökkvi-og björgunarsþjónustu og tvö fyrir lögreglunema við Háskólann á Akureyri en í framtíðinni er markmiðið að allir nýútskrifaðir lögreglumenn verði með menntun sem vettvangsliðar..

Á árinu 2017 voru haldin 64 námskeið og var heildarfjöldi þátttakenda 725.

Markmið Sjúkraflutningaskólans er að mennta einstaklinga til starfa við sjúkraflutninga og hafa umsjón með framhalds- og símenntun fyrir sjúkraflutningamenn og aðra sem tengjast sjúkraflutningum og utanspítalaþjónustu. Við skólann starfar einn skólastjóri. Auk hans starfa við skólann fjöldi leiðbeinenda sem verktakar sem eru m.a. sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður og læknar.

Sjúkraflutningaskólinn er rekinn sem sjálfbær eining innan Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og ber framkvæmdastjórn SAk ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Ennfremur er starfandi fagráð Sjúkraflutningaskólans en í því sitja fulltrúar frá SAk, Velferðarráðuneyti, Háskólanum á Akureyri og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.